Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Costa Rica

Innskráningar kubbur

Casi navidad

07. desember 2009 klukkan 05:02

Hæhæ!

Blogg loksins. Nú eru liðnir sirka 2 mánuðir síðan ég skrifaði seinast og ég hef gert alveg helling á þessum stutta tíma.

Í október var önnur "serenata" sem við stelpurnar gerðum fyrir strákana og það heppnaðist bara mjög vel og var voða gaman. Skólinn kláraðist síðan í lok október sem var nú ágætt. Erla kom síðan til mín í lok október og kom í skólann þar sem það var "halloween" dagur þar. Eftir skóla fórum við í smá verslunarleiðangur í Terrmall og svo heim að græja okkur fyrir kvöldið. Nicole vinkona mín hélt uppá smá afmæli og seinna um kvöldið fórum við í halloween partý til Rober, ég klædd sem íslenskur snjór og Erla sem íslenskur himinn eða eitthvað haha. Daginn eftir áttu hóstforeldrarnir mínir afmæli svo við Erla bökuðum pönnukökur og borðuðum saman, seinna þann dag tókum við AFS þátt í skrúðgöngu hérna niðrí bæ sem er haldin árlega og dönsuðum og sungum með grímur :) það var  lítið gert í byrjun frísins þar sem krakkarnir voru að taka stúdentsprófin fyrstu tvær vikurnar í nóvember svo Sumi og ég dunduðum okkur bara. Fórum einn daginn til Turrialba að skoða þar og tókum nokkra daga í að hlaupa og gera æfingar, þurftum að koma okkur í form fyrir útskriftarferðina! Við Sumi plönuðum síðan ferð á ströndina með skiptinemum Cartago og fórum á playa jacó í einn dag. Það var alveg æðislegt veður og allt heppnaðist vel. 

Þann 11.nóv fórum við í langþráðu útskriftarferðina til playa tambor og vorum þar á geðveiku hóteli með æðislegum mat, góðu diskói og fallegri strönd. Vorum þar í 3 góða daga og nutum okkur vel þarna :) Eftir ferðina fór ég svo í fermingu til fjölskyldu hóstpabba og það var í fyrsta sinn sem ég sé fjölskyldu hans! Eftir ferminguna fórum við Sumi til San José til þess að heimsækja Martin frá Noregi á sjúkrahúsið. Hann semsagt veiktist og það sprakk botnlanginn svo það þurfti að skera hann upp. 

Ég átti síðan eina viku þar sem ég var ekkert með planað svo ég svaf mikið og dundaði mér heima. Fórum síðan vinirnir í hús vinkonu minnar sem er svona hálfgerður sveitabær og gistum þar yfir nóttina. Nóvember leið svo hratt! Ég var byrjuð að stressa mig voða mikið á þessum tíma yfir því að fara frá Costa Rica, það verður svo skrítið að koma heim. 

Jæja, 23.nóvember plönuðum við Sumi aðra strandarferð! Pöntuðum hótel í guanacaste á strönd sem heitir playas del coco. Við þurftum semsagt að skipuleggja allt, bjóða fólki með og gera þessi leiðinlegu AFS ferðaleyfi. Þessu viku bjó ég líka til heeeelling af jólakortum haha, ágætt að föndra smá og koma sér í jólaskap. Þann 26.nóv var þakkargerðarhátíðarmatarboð heima hjá Rober þar sem mamma hans bjó í bandaríkjunum í mörg ár, þetta er semsagt ekki siður í Costa Rica. Fór þangað snemma til að hjálpa til og það var allt svo fallegt og gott, borðuðum kalkún og kartöflustöppu og spjölluðum alveg til 1. Btw hef aldrei verið svona lengi úti síðan ég kom til Costa Rica haha.

Daginn eftir héldum við AFS á ströndina í síðustu búðirnar saman. Vorum á hóteli í 3 daga á Punta Leona og það var svo niiice! Já, hef verið mikið á ströndinni þessa dagana :)

Þegar ég kom heim var búið að skreyta húsið og jólatréð komið upp, allt í ljósum og voða fallegt. Rotaðist síðan strax og ég lagði mig, svo þreytt eftir allt þetta ferðalag. Daginn eftir man ég ekkert hvað ég gerði..

Á þriðjudaginn hádegismataði ég hjá Rober og fórum síðan út að borða ís á POPS, eini góóóði ísinn hérna. Eftir það fórum við heim til Adri að hitta hana, Esteban og China. Ætlaði að vera voða bjartsýn að mæta til Cartago kl.5 þar sem við í AFS Cartago áttum matarboð með kínverjum haha. Adri býr í svona ríku hverfi sem er lengst uppí fjalli, þarf að labba upp svona 3 km brekku til að komast heim til hennar svo ég var mikið að vonast eftir því að mamma hennar gæti skutlað mér niðrá stoppistöð en neeei, hún var að vinna. Við einhvern vegin fengum þá hugmynd að hjóla niður svo við gerðum það! Það var svo gaaaman, fyrsta sinn sem ég hjóla í Costa Rica og nú get ég ekki beðið eftir því að hjóla aftur haha. Mætti klukkutíma seint í matarboðið en það var nú í lagi þar sem kínversku boðsgestirnir mættu svona 2 tímum of seint. 

Á miðvikudaginn fórum við Sumi, Bethany, Foufi, Erla og Beggi á ströndina! Það var ÆÐI og mig langaði svo ekkert að fara þaðan. Skemmtum okkur vel og allt var svo frábært þarna og fallegt. Komum heim á föstudaginn úr hitanum í kuldan hérna í Cartago. Í gær var voða gaman. Fór með hóstmömmu í bæinn að leigja myndir og að skoða í búðum, hún gaf mér síðan skó þar sem mínir voru rændir af sjónum í playa ocotal haha. Það var æðislegt veður svo við stoppuðum við á kaffihúsi og drukkum límonaði. Um kvöldið horfðum við síðan á myndirnar og við Sumi vorum hérna heima að spjalla. 

Í dag bauð fjölskylda Rober mér að koma með þeim að kaupa jólatré og skreyta það. Fyndið hvernig þetta er gert hérna, er bara farið í einhvern garð þar sem fólk er að selja trén í garðinum sínum, valið jólatré og svo höggva þau það niður. Og það er enginn snjór hérna..   haha já, skemmtilegt að upplifa jól án kulda :) Við skreyttum síðan jólatréð, hlustuðum á latino tónlist og drukkum mojito. Mér leið bara ekkert jólalega haha. Kom svo heim til að pakka þar sem ég er að fara til Panama á morgun!! Er komin með allt niðrí tösku og hlakka voða mikið til að fara :) Ætli ég bloggi ekki bara eftir Panama eða um jólin. Kannski bara rétt áður en ég kem heim, það er nú alls ekki langt í það.

Þetta blogg er orðið frekar langt og þreytt haha, vona að þið hafið það öll gott :)

Kveðja Helen sem verður komin heim eftir 36 daga!


8 mánuðir

12. október 2009 klukkan 23:02
Blessuð og sæl, eftir 3 mánaða fjarveru í bloggheiminum.

Ég er semsagt ennþá hérna í Costa Rica, hef verið hérna úti í 8 stutta mánuði á morgun. Alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur frá manni. Þegar ég skrifaði seinast var ég held ég í fríinu í júlí - vandræðalega langt síðan hehe. Ætla að reyna að rifja aðeins upp þessa 3 mánuði en lífið hérna hefur þó verið óvenju rólegt.

Afgangurinn af júlí fór í skólann aðallega. Ferðaðist ekkert og gerði voða lítið. Erla kom í heimsókn og ég til hennar, Colin frá Argentínu kom í heimsókn og svo var ég eitthvað að pæla í því að skipta um braut í MA og fara í fjarnám í félagsfærði en er þó hætt við það núna.
Í ágúst vorum við Sumi alveg hættar að læra í skólanum eða taka eftir svo við skrópuðum einn daginn, btw fyrsti dagurinn sem ég skrópaði í skólann. Sumi og ég fórum til Orosí í sund á sóla okkur aðeins, var svo óheppin að brenna smá og frá far eftir bikiníið að ég þurfti að ganga með klút í 3 daga svo enginn myndi fatta hehe. Þennan mánuð fór ég líka á fyrsta stefnumótið mitt, voða gaman. Svo tók ég mér vikufrí frá Cartago og fjölskyldunni en ég lenti í einhverju veseni heima fyrir og leið illa svo eina helgina voru AFS búðir og eftir það fórum við Sumi til Zarcero, Sarchí, El Arenal, La Fortuna og fleiri staði með annarri japanskri stelpu og gistum heima hjá fjölskyldu hennar. Það var alveg æðislegt að komast aðeins í burtu og skoða fallega náttúru Costa Rica. Alltaf eitthvað nýtt og fallegt að sjá hérna.


Ég í Sarchí við stærstu kerru í heimi


September var rólegur og heitur! Þetta árið hefur hitinn nefnilega hækkað alveg svakalega og haft vond áhrif á landið. Allt að þorna upp og ávaxtauppskera að minnka. Það sem mér finnst verst er það að skjaldbökuungarnir dóu flest allir vegna rigningaskorts svo þetta árið verður ekki farið með AFS á ströndina að hjálpa litlu ungunum í sjóinn.
Notaði september mánuð í það að fara út að hlaupa með Esteban (besta vini mínum hér) til þess að koma okkur í form fyrir útskriftarballið og útskriftarferðina. Var líka orðin svo mikil bolla en er öll að koma til núna hehe. Sumi og ég fórum líka stundum eftir skóla heim til hennar að tana, keyptum okkur gardínu á útsölu til að liggja á í garðinum og sólarvörn með gulrót til að fá meiri lit. 
Svo tókum við líka nokkra "mæta seint í skólann" daga því okkur var farið að leiðast alveg skelfilega! Í lok september þurftum við fjölskyldan og AFS að tala öll saman því ástandið var farið að versna og eftir þann fund hefur allt verið að skána, vona að allt verði fínt fyrir jól :) 


Bekkurinn minn! 11-A


Þann 1.október átti Sumi afmæli svo ég undirbjó óvænta veislu fyrir hana heima hjá Chinu. Það var alveg svaka fjör og allt heppnaðist vel. 2.október átti Lísbet systir afmæli og þann 3. október hún Ásdís, til hamingju með það ;*
Þann 2.okt um kvöldið var "la serenata" hjá strákunum en La Serenata er hefð hérna í Costa Rica. Hún virkar þannig að allir strákarnir í 11.bekk koma í rútu heim til allra stelpnanna seint um kvöldið og syngja og gefa manni gjöf. Svo þegar allir eru komnir er farið í einhvern sumarbústað og drukkið, dansað og skemmt sér alla nóttina. Það var alveg geggjað gaman! Strákarnir komu í mitt hús um 11 leitið, sprengdu flugelda, öskruðu og sungu, æddu svo inní herbergið mitt, gáfu mér gjöf og 3 mínútur til að klæða mig í föt og svona. Vorum komin uppí bústað um 3 leitið um nóttina og ég kom heim um 9 leitið morguninn eftir. Hlakka svo til þegar við stelpurnar förum til strákanna en það verður næstu helgi! 
Á föstudaginn fórum við frá AFS til þorps, Pagayas, uppí eldfjalli til að kynna löndin okkar fyrir litlum krökkum í skólanum þar. Það gekk voða vel, lærðu að heilsa og kveðja á íslensku og telja uppá 5 :) endalaust krúttleg þessi litlu.
Ætla svo aðeins að segja frá útskriftarballinu sem var síðasta laugardag. Það var haldið á 5 stjörnu hóteli í Heredia sem var svo flott! Um 11 leitið var byrjað að græja sig og loksins vorum við tilbúin um hálf 5, hóstforeldrarnir mínir og ég. Það reyndar gerist eitt svo svo svo svekkjandi þann dag, myndavélin mín bara dó. Nú á ég semsagt enga myndavél..
Jæja á ballinu var geggjað, svo góður matur, allir svo fínir og sætir og síðan dönsuðum við til 12-1 leitið. Það komu Mariachi, carnaval, flugeldasýning, stelpur að dansa á mallanum og strákar með sverð hehe. Ég skemmti mér alveg konunglega og naut mín vel í síðum kjól með skartgripi frá hóstmömmu hah.

 


Sumi og ég í "El Carnaval"
 

 

Ég og Rober á hótelinu

 

 

 

Nú fer bara að styttast í jól, allar búðir hérna fullar af jólaskrauti og jólaljósum. Skrítin tilfinning fyrir jólunum sem ég fæ þegar ég labba inní þessar búðir, án kulda og snjós. En þó er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og þess vegna er ég hér. Annars langar mig bara ekkert heim..   Líður svo vel hérna og gæti alveg ímyndað mér að koma hingað til að læra í háskóla. Er meiraðsegja búin að skoða tvo háskóla sem mér lýst vel á! Hef þó einhver 3 góð ár í það að hugsa mig um hvað ég geri. 
Nú get ég bara ekki beðið eftir því að komast í frí og fá að ferðast aðeins, í augnablikinu þarfnast ég svo að sjá sjó, hef ekki séð hafið síðan í júní. Langar líka svaka mikið að borða snjó hehe. 
Jæja, þetta er komið gott :) Ég blogga svo á næstunni aftur þegar ég hef frá einhverju að segja.

Elsku mammsí, til hamingju með afmælið á morgun ;* Elska þig
Kveðja Helen!

Frí og flensa

17. júlí 2009 klukkan 21:39
Halló :)

Þá er víst liðinn meira en mánuður síðan ég skrifaði eitthvað síðast og fyrst ég hef nú tíma þá ætla ég aðeins að láta vita af mér. Ég er búin að vera í fríi síðan 25.júní og hef verið að bralla margt og mikið síðan þá! Michael Jackson dó einmitt þann dag..
Ég og Sumi vinkona byrjuðum fríið á að skrópa og fórum til Orosí sem er þorp nálægt Cartago. Benisse (hóstsystir) kom með og við fórum í sund í góða veðrinu og borðuðum ís. Um kvöldið var eitthvað svaka electric ball og ég var búin að kaupa miða en nennti bara ekki að taka mig til, kann ekki að mála mig lengur eða græja hárið á mér svo ég fór bara til Sumi og við horfðum á myndir allt kvöldið.

23u3ggx.jpg

Þá helgina fór ég á ströndina með bestu vinum mínum hérna. Það var æði, síðasta helgin okkar allra saman og við nutum þess í botn. Ég held samt að ég og Erla nutum þess of mikið þar sem á sunnudaginn vorum við svo rauðar og brunnar af sólinni að það var sárt að labba og rútuferðin heim var eins og gufubað..  og næstu 3 dagar eftirá. Vikan þar á eftir gerði ég voða lítið þar sem ég veiktist eftir strandarferðina, held að það hafi verið moskítóflugurnar eða bruninn. Hékk mikið með systur minni þar sem við höfum aldrei tíma til að gera eitthvað saman þar sem hún er í háskólanum en við höfum náð að kynnast hvor annarri miklu betur uppá síðkastið :) 

34jerth.jpg


6. til 8.júlí fór ég til Tortuguero með AFS. Það var æði! Ég hef aldrei á ævi minni séð svona fallegan stað. Það eru nefnilega engar götur þarna, engir bílar og aðeins 1000 manna þorp sem þarf að ferðast um á bátum, skurðirnir eru nefnilega göturnar þarna. Þetta er kallað "the small amazonas" en ég hendi inn myndum á facebook bráðlega svo þið getið séð! Þarna sáum við helling af villtum dýrum. Sjaldbökur, tucán, krókódíla, eitraða froska, köngulóa apa, kongó apa og fl.

206zvgp.jpg


Síðan kom að sorglega partinum þar sem við vinirnir þurftum að kveðjast. Hittumst öll í Cartago og spjölluðum og tókum myndir þangað til allir þurftu að fara. Það var erfitt að kveðja. Beggi (íslendingur) missti svo af rútunni sinni svo hann gisti hjá mér eina nótt og við spiluðum tölvuleiki og tónlist með systkinum mínum um kvöldið og morguninn eftir fórum við í smá skoðunarferð um bæinn. 
Um kvöldið kom Magdi vinkona heim frá ströndinni og Gabe (usa) missti líka af rútu svo ég og hann gistum hjá Magdi og fórum út um kvöldið á karaokebar haha, svakalega gaman. Svo kvaddi ég Gabe í annað skiptið og fór í morgunmat heim með Sumi og Magdi. Vorum svo bara síðustu dagana með Magdi að hjálpa henni að pakka niður, rifja upp góða tíma og gistum síðan allar saman og vöktum til 5 en þá fórum við Sumi á ströndina með fjölskyldu hennar. Kvöddumst, skiptumst á gjöfum og fórum.

Á ströndinni var nice. Reyndar vorum við eiginlega aldrei á ströndinni sjálfri heldur bara á veitingahúsunum þar sem fjölskyldu Sumi finnst gaman að borða. Aaaldei hef ég borðað svona mikið guð minn almáttugur. Fórum á 4 strandir, horfðum á kvöldsetrið eða sólarsetrið, veit ekki nafnið á þessu! borðuðum, vorum í sundlauginni í garðinum á húsinu, borðuðum meir og reyndum að sofa í hitanum þarna. Til að þakka fyrir mig þar sem ég borðaði ekki einn einasta aur fyrir þessa ferð, bakaði ég pönnukökur handa þeim sem þeim fannst alveg æðislegar.


Jæja þetta var svona dagbókar ritunin mín..  annars er bara allt gott að frétta af mér en eitthvað verra af Costa Rica. Dollarinn verður alltaf hærri og hærri, svínaflensan er orðin slæm og vegna þess fáum við eina viku enn í frí, kannski tvær ef fleira fólk deyr. Það dó einn 18 ára strákur um daginn og í gær einn 20 ára svo þetta er ekki bara að lenda á gamla fólkinu. Ég er ekkert voðalega hrædd en passa mig þó að þvo mér alltaf um hendur og nudda ekki augun á mér. Ég er þó mest hrædd um að AFS sendi okkur heim eins og þau gerðu við krakkana í Mexíkó.

Hérna í Cartago er orðið kaaalt! ég notaði þykka peysu í gær og fyrradag og loftið lyktaði eins og íslenskt loft, ferskt og hreint. Ég var alveg búin að gleyma hvernig væri að vera kalt, hvernig verður það fyrir okkur íslendingana hérna að lenda á Íslandi í janúarfrostinu á næsta ári..   Síðustu daga hefur mig verið að dreyma óvenjumikið á Íslandi, var á laugarveginum um daginn, hjólaði svo til Húsavíkur og hélt síðan partý heima. Eftir þá drauma finnst mér ég alltaf vera á Íslandi þegar ég vakna, pínu óþæginlegt hehe en ég hlakka voða mikið til að koma heim :) Reyndar á ég svo mikið eftir að gera hérna! Ætla að njóta þess vel, á bara helming dvalarinnar eftir og einhverja 50 daga af skólanum. 

Svo langar mig líka að þakka Hönnu Dísu, Örnu og Hellu frænku fyrir sendingarnar og bréfin! Æðislegt að fá smá lestrarefni og íslenskt nammi :) Og já, ef einhver ætlar að senda eitthvað út til mín þá er betra að skrifa nafn hóstpabba, þ.e.a.s. ef þið séuð að senda pakka. Nafnið mitt er í lagi á venjulegum bréfum en þar sem ég er útlendingur hérna þá er pakki helmingi lengri á leiðinni með mínu nafni. Hóstpabbi heitir José Nemesio Zúñiga Loarza. 
Annars veit ég nú ekki hvað ég á að segja ykkur, allt er orðið svo venjulegt fyrir mér hérna. Ég trúi því varla að ég hef verið hérna í 5 mánuði og sé að fara að koma heim eftir 6. Ég var að skoða MA síðuna um daginn og sá almanakið fyrir næstu önn og aaaa þið byrjið í prófum sama dag og ég kem heim haha, hversu mikil óheppni. Ég fæ þó 3 vikur heima til þess að aðlagast áður en ég byrja aftur í skólanum hehe.

Jæja jæja, ég skal skrifa eftir frí aftur :)
Bless í bili

aaaa Hlín! takk fyrir að hringja ást, ég sakna þín svo mikið. kjarnaskógur í jan ;*

 

4 mánuðir

10. júní 2009 klukkan 02:33
Rosalega er tíminn fljótur að líða! Hef verið að heiman í 4 mánuði núna :)
Alveg hellingur búinn að gerast síðan síðast svo ég ætla að segja ykkur aðeins frá lífi mínu þessa dagana..

Er orðin 18 ára! Finnst það samt ekkert spennandi og langaði bara ekkert að eiga afmæli hehe, fékk smá heimþrá í tilefni dagsins en annars hef ég ekkert fundið fyrir heimþrá og líður bara helvíti vel. Ég bauð nokkrum vinum úr skólanum, nokkrum skiptinemavinum og systur minni í veislu um kvöldið sem var bara fínt, svolítið skrítið að eiga spænskt afmæli samt.. 
Á föstudeginum fyrir afmælisdaginn ákváðum við stelpurnar að gera eitthvað næs um kvöldið svo ég fór með gossip girl þætti heim til Sumire til að horfa á og borða nammi. Pabbi hennar svaraði og sagði mér að fara útí garð. Ég fór þangað og voru þá stelpurnar með surprise handa mér og einnig fjölskylda Sumire! Þau sungu öll og spiluðu latino tónlist, elduðu uppáhalds matinn minn, bökuðu muffins og voru svo æðislegar :) Það sem mér fannst svo fyndið var að systir Sumire sem býr meiraðsegja ekki hjá þeim og ég hef aldrei séð keypti risa köku handa mér, svona bakarísköku og mamma Sumire keypti vín handa mér þar sem ég má drekka í Costa Rica 18 ára hehe. Svo æðislegt fólkið hérna.


Á sunnudeginum eftir fór ég að skoða Volcán Poás með Magdi og 3 öðrum þýskumælandi krökkum. Svo fallegt þarna! Allt örðuvísi heldur en Volcán Irazú sem er hérna rétt hjá mér en ég hafði gaman að þessu. Hittum fólk frá Ísrael hehe, ég held ég hafi bara aldrei hitt ísraelskt fólk og ég vissi ekkert um Ísrael nema að þau væru ættingjar Jesú og það eru stundum stríð þarna. Nú veit ég að þau hafa strendur, snjó, sumar og stríðlaus svæði.

Á þriðjudeginum fórum við Magdi með helling af fólki og vinum á tónleika með Los Fabulosos Cadillacs í San José! Það var geðveikt! Rigndi reyndar svakalega en áður en þeir byrjuðu að spila var hætt að rigna og allt svo æðislegt. Ég ætla pottþétt aftur á tónleika með latino fólki, þar er svo hresst. Komum heim um 2 leitið og svaf í 3 tíma áður en skólinn byrjaði..   aaah.

Daginn eftir hittumst við Sumire með blöðru og gjafir handa Magdi þar sem hún átti afmæli. Áttum síðan þreyttan skóladag en þrátt fyrir það gerðum við surprise fyrir Magdi með því að baka köku, íslenskar pönnukökur, gelatina, blöðrur og fleiri gjafir. Fórum síðan með þetta allt heim til hennar og borðuðum og hlustuðum á tónlist, voða nice. Rotaðist síðan um 7 um kvöldið. 

Næsti laugardagur var síðan æðislegur! Fjölskyldan mín hérna bauð Magdi, Sumire og Anitu með uppí fjall þar sem systir hóstmömmu á hús. Þar var öll ættin og mikið fjör. Spiluðum fótboltaspil, fótbolta, fórum á hestbak, löbbuðum aðeins upp fjallið, borðuðum ávexti af trjám, sungum karaoke, borðuðum mikið og enduðum síðan á því að drekka kaffi eins og alltaf :) Var svo ánægð með daginn. Á sunnudaginn fór ég með fjölskyldu Magdi og ömmu hennar, Tessi og Sumire til Heredia í Inbio parque þar sem eru tropical dýr og plöntur. Fórum síðan á veitingarstað og borðuðum ekta Costa Rica mat, svo gott.

Um síðustu helgi fór ég síðan í canopy með helling af vinum, það var geðveikt! Við íslendingarnir sameinaðir á ný og allir hressir. Set myndir inná facebook fljótlega þar sem myndir segja þúsund orð :) Síðan fer fríið að byrja hjá mér eftir rúmar tvær vikur. Ætla að reyna að ferðast sem mest og læra meiri spænsku í þessar 3 vikur sem við fáum. Svo er bara ágúst og september eftir að skólanum þar sem október og nóvember fara í háskólapróf hjá krökkunum og í desember og janúar er sumarfríið. Ætla að fara að sofa núna, verður bara stutt en það er allt gott að frétta af mér, byrjuð í ræktinni, náði efnafræðiprófi og er elskuð af moskítóflugum.

Kveðja Helen ;* 

Til hamingju mamma mín

16. maí 2009 klukkan 17:52
Hææ..

hehe skammast mín fyrir að hafa ekki bloggað í rúman mánuð. ég bara nenni varla að blogga eða þegar ég hef tíma til að blogga finnst mér skemmtilegra að gera eitthvað annað. en jæja, nóg af væli.
síðasti mánuður hefur verið æði! fór á monster jam með nokkrum góðum vinum en monster jam er bílasýning þar sem stórir trukkar eru að kremja litla bíla og stökkva og svona. voða stuð. ég fór líka með 4 bekkjarfélugum mínum að sýna brúðuleikhús fyrir eldgamalt fólk hehe. upphaflega hugmyndin var að fara á barnasjúkrahúsið í san josé og leika fyrir litlu krakkana en þar sem sjúkrahúsið gat ekki tekið á móti okkur fórum við á elliheimili..   hehe skil ekki hvernig vinum mínum datt það í hug en þau gömlu skemmtu sér vel :) líka voða skemmtilegt að tala spænsku svona opinberlega þó ég hafi sleppt nokkrum orðum þar sem ég gat bara ekki borið þau fram og fór að hlægja. týpískt hehe, leið eins og í gamla daga þegar við vorum að safna flöskum hjá fólki og fórum alltaf að hlægja þegar skrítið fólk kom til dyra.

varð síðan veik vikuna eftir brúðuleikhúsið í einhverja 3-4 daga en ekkert alvarlegt. svo var eitt fyndið sem gerðist heh, ég og magdalena vinkona mín vorum niðrí bæ að kaupa íþróttabúninga fyrir skólann og vorum að bíða eftir að komast yfir götu en þar sem umferðin er alveg þroskaheft hérna vorum við komnar í hlaupastöður til þess að hlaupa yfir næst þegar við gætum. loksins gátum við hlaupið yfir og ég tók á sprett og hljóp beint á sendiferðabíl, hann nefnilega stoppaði bara! heheh bílarnir í kring horfðu á mig eins og vitlausan túrista en ég og magdi sluppum þó yfir götuna. sömu viku ætlaði ég að prófa að fara á blak æfingu með magdi og sumire en gat það ekki því höndin á mér tognaði eftir skellinn á bílinn...

vikuna eftir prófaði ég æfingu og það gekk bara hræðilega haha, æfingarnar voru þannig að við áttum að renna okkur á maganum og fara síðan í afturábak kollhnís(guð hvernig er þetta skrifað?) en ég átti ekki hnéhlífar sem varð til þess að ég fékk marbletti og brunasár á hnén. í íþróttatíma í skólanum spurðu allar stelpurnar mig hvað hefði gerst við mig með svona áhyggjusvip á andlitinu. heheh fólkið hérna er svo fyndið, stelpurnar stunda ekki íþróttir og hafa örugglega aldrei fengið marbletti á líkamann.

annars er allt frábært hérna, líður svooo vel og stundum finnst mér ég bara vera í draumi. mér líður miklu betur í skólanum þar sem vinir mínir þar eru orðnir svona alvöru vinir og einkunnirnar aaaðeins farnar að verða betri. fjölskyldan mín er æðisleg og ég hef greinilega verið voðalega heppin með hana. skiptinemarnir hérna eru líka svo skemmtilegir og nice, við íslendingarnir erum líka voða heppin með að ná svona vel saman :) fór á ströndina síðustu tvær helgar og það var æðislegt! þá fannst mér ég vera í draumi..  í lok apríl var líka afs hittingur, fórum til heredia og gistum í krúttlegum húsum með fallegt útsýni og geðveiku campusi. svo gaman að hitta erlu og begga og alla hina :) svo kannski smá fréttir af svínaflensunni hérna í costa rica. það nýjasta er að 14 manns eru smitaðir en mér finnst nú fólk vera að taka þessu ansi létt þar sem hér eru til lyf og sprautur annað en í mexíkó þar sem fátæktin er miklu verri. ég fer þó varlega og heilsa ekki alltaf með kossum núna :)

næsta laugardag á ég svo afmæli! þetta er svo fljótt að líða guð minn góður. ætla að bjóða svona 12 manns hingað heim og borða köku og spjalla. voða fyndið þegar ég spurði hvort beggi og erla mættu ekki gista hérna og svipurinn á hóstmömmu var svona skelfdur, hræddur eða einhvern veginn villtur haha. strákur að gista? hehe æi fólkið hérna..  hún sagði að það væri alveg rosalega skrítið ef strákur myndi gista hjá stelpu og það væru alltof margir unglingar óléttir í costa rica. svo fór ég bara að hlægja, gat ekki ráðið við hláturinn. útskýrði svo að við beggi værum nú bara vinir og það væri nú ekkert voðalega skrítið ef vinir myndu gista á íslandi og þá sagði hún að þetta væri alltílagi en hann myndi sofa í öðru herbergi :D hehehe krútt.

heyrðu verð að fara að borða og græja mig fyrir línuskauta og afmæli í dag! endilega skrifið í athugasemdir, gaman að heyra smá frá ykkur :) ætla svo að enda þetta blogg á því að óska elsku mömmu minni til hamingju með útskriftina frá myndlistaskóla arnar inga, ég er svo stolt af þér elsku mamma mín og málverkin þín eru svo falleg. margra ára vinna og loksins útskrifuð :) hlakka til að sjá myndir frá sýningunni og gangi þér vel!

kveðja helen frá costa rica! 

Smátterí

12. apríl 2009 klukkan 05:05

Smá smá smááá blogg!

Trúi því ekki að ég sé strax farin að slakna í þessu bloggi hehe. Svo núna ætla ég bara aðeins að láta vita af mér og hvernig páskafríið hefur verið:)

Ég hef alltaf verið vön að punkta niður eftir hvern dag hvað ég hef verið að bralla en núna er tveggja vikna eyða í bókinni, veit ekki alveg hvað kom yfir mig! En páskafríið hefur verið alveg yndislegt, rólegt en voða nice. Ég fór því miður ekki á ströndina svo ég verð að bíða þolinmóð eftir næstu strandarferð. En já, vikan fyrir páskafrí var geggjuð. Ætla aðeins að segja :D

Í sundlauginni í Orosí

 

Vikan einkenndist af venjulegum fötum, ekki skólabúningnum - lúxus! Á þriðjudaginn þessa vikuna vaknaði ég eldspræk um 4 leitið, bekkurinn var á leiðinni í ferð til Carara sem er þjóðgarður í Puntarenas. Við áttum að leggja af stað kl.5 en rútan kom ekki fyrr en um 6 hehe, alveg ótrúlegt hvað fólk kemst upp með að afsaka sig með "hora de tico" eða ticotími (ticos er fólkið hérna í CR) Jæja, keyrðum í gegnum 5 fylki af 7 í CR svo nú á ég bara eftir að heimsækja Guanacaste og Limón! Löbbuðum góða 3 tíma í 35°c í þjóðgarðinum, jesús, en ég sá krókódíla og baneitraðan snák svo þetta var þess virði :) Eftir gönguna fórum við öll í einhvern hótelgarð þar sem kennarinn minn á íbúð og fórum í sund, drukkum coctaila með spænskri tónlist og borðuðum gallo pinto. Draumur. Ferðin var fullkomin fyrir utan það að ég gleymdi myndavélinni..

Lindsey, krókódíll og ég

 

Á miðvikudaginn fór ég með AFS fólki til San José til að sjá Costa Rica keppa við El Salvador í fótbolta! vá hvað það var geðveikt, stúkan hristist allan tímann og guð hvað fólk blótar hérna haha. Lærði að syngja með stuðningslögunum sem einkenndust eiginlega bara að blótsyrðum..  Fyrsti landsleikurinn minn og ég ætla svo sannarlega aftur í júní þegar USA kemur hingað, þá verður víst allt klikkað! Svo fórum við á háskólakynningu einn daginn og á föstudaginn var íþróttadagur í skólanum. Ég keppti í fótbolta með strákunum og stelpunum og það var svo gaman! Gott veður þennan daginn og ég gleymdi sólvörn svo hendurnar á mér urðu eldrauðar hehe. Eftir skóla tókum við Sumire svo rútu til San José og fórum í smá verslunarleiðangur :)

 

PÁSKAFRÍ - loksins. Fór í barnaafmæli með Magdi á sunnudaginn. Þetta var hinsvegar 16 ára afmæli en mér leið eins og 10 ára krakka þarna. Við fórum t.d. útá róló að vega salt og skvettum vatni á hvort annað úr gosbrunni haha. Þekki reyndar ekkert stelpuna sem bauð mér en þar sem fólk er svo góðhjartað hérna bauð hún okkur skiptinemunum líka hehe. Skrapp einn daginn til Tres Ríos með Magdi þar sem við hittum Zach og Jacob, fór líka með familíunni til lítils þorps hérna rétt hjá Cartago þar sem við skoðuðum rústir og fórum í sund, mmm það er svo gott! Ég er ótrúlega ánægð hvað við fjölskyldan ferðumst mikið saman um helgar, er búin að sjá svo mikið :) 

Það var aldeilis dekrað við mig allt fríið því þau hafa örugglega verið með samviskubit vegna strandarferðarinnar sem varð ekkert úr hehe, en ég naut þess alveg í botn. Ætla samt aðeins að segja frá páskunum sjálfum hérna í CR því þeir eru allt öðruvísi en heima. Núna á fimmtudaginn og föstudaginn er ekkert kjöt borðað, engir bílar og engar rútur eru á vegunum en auðvitað eru alltar einhverjir sem fylgja því ekki. Í hverjum bæ er síðan svona krossfesting þar sem dúkku-Jesús hengur á krossi. María mey er síðan inní einhverju búri líka og svo eru riddarar sem labba um með sverð og lifa sig svo mikið inní þetta, það var frekar fyndið. Ég áttaði mig á því í fyrsta sinn á ævi minni að páskarnir væru sorglegir! Hef alltaf litið á þá sem gott frí en fólkið hérna er sorgmætt, hóstmamma mín t.d. var uppí rúmi allan daginn að horfa á trúarlegar myndir og kveikti á kertum og talaði ekki. Ég hélt fyrst að hún væri bara í smá fýlu en nei, þá er þetta bara það sem hún gerir vegna krossfestingu Jesús. 

Við systkinin við gamlar kirkjurústir

 

Svo skruppum við uppí fjall í hús sem fjölskylda hóstmömmu á. Þar voru allir og mikið fjör. Fékk að smakka svona mat sem er inní bananalaufi, fannst svo spennandi að opna laufið og sjá en oj haha, það sem er inní þessu er fita með smá baunum inní og ég píndi þetta ofaní mig, okkur var nú ráðlagt að smakka allan mat! Þau lugu síðan öll að mér að um þessa helgi mætti enginn borða neitt, drekka neitt, ekkert sjónvarp né tölva heldur yrði ég að vera uppí rúmi að lesa biblíuna, ég var svo glöð að fatta djókinn..  Á leiðinni heim var voða spes því ljósflugurnar voru útum aaallt, vá hvað það var flott. Leit út eins og snjókoma en þettu eru flugur sem lýsa í myrkri.

Magdi og ég í Tres Ríos

 

 

Aa svo var ég dugleg að fara út að labba og hljóp 5 km í morgun, ekki veitir af í öllum þessum mat. Svo tekur bara skólinn við á mánuadaginn og önnur prófatíð. Styttist óðum í 2 mánuðina hjá mér, hinsvegar finnst mér ég hafa verið hérna í 3..  Ætla að setja hérna inn upplýsingar um heimilisfang og síma ef þið skylduð vilja senda mér eitthvað sætt eða hringja. Jafnvel heimsækja mig hehe :)

 

Heimilisfang:

Barrio El Molino Urb. La Lima, Casa B19 

Central 

Cartago 

Costa Rica 

 

Heimasími:

2552-3330  (Aló, Helen estA?) 

 

Ætla síðan að óska Örnu minni til hamingju með 18 árin þann 10.aprí ;) Jæja, hlakka til að heyra í ykkur!

Helen ;* 

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Helen Hannesdóttir
  • Netfang: helenh_91@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Kyn: kvk
  • Hjúskaparstaða: einhleyp
  • Um mig: 17 ára stelpa frá Akureyri
  • Annað: Skiptinemi í Costa Rica frá febrúar 2009 til janúar 2010